- Dagsetning
- 4. febrúar 2026
- Tími
- 16:30
- Staðsetning
- Grand Hótel, Háteigi og á Teams
Nám í hjúkrunarfræði er í stöðugri þróun til að mæta kröfum samtímans. Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin hefur ítrekað lagt áherslu á þörfina fyrir aukna og víðtækari menntun hjúkrunarfræðinga til að takast á við sífellt flóknari áskoranir í heilbrigðiskerfinu. Hjúkrunarfræðinám á Íslandi hefur um áratugaskeið verið í fremstu röð á alþjóðavísu og markmið okkar er að halda áfram að vera í fararbroddi á því sviði.
Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga boðar til upplýsingafundar um framtíð hjúkrunarfræðimenntunar á Íslandi.
Hjúkrunarfræðingar eru eindregið hvattir til að mæta og taka þátt í mikilvægu samtali um þróun fagsins og framtíð menntunar í hjúkrunarfræði.
Hlekkur á fundinn á Teams verður aðgengilegur á Mínum síðum.
Dagskrá
- Forsaga
- Framtíðarsýn hjúkrunarfræðináms
- Sjónarhorn hagaðila
- Pallborðsumræður





