- Dagsetning
- 1. október 2026
Ferðin leiðir þig inn í hjarta Suður-Ítalíu, þar sem litskrúðug þorp, dramatísk strandlengja og gróskumiklar hlíðar mynda óviðjafnanlegt umhverfi. Við heimsækjum hina heillandi eyju Capri, göngum hinn heimsfræga Stíg Guðanna, klífum sögufrægar hlíðar Vesúvíusar og njótum andrúmsloftsins í fallegu borginni Sorrento. Þar kynnumst við bæði menningu og matargerð svæðisins – meðal annars á líflegu pizzugerðarnámskeiði.
Á milli skipulagðra dagsferða gefst einnig nægur tími til að slaka á, rölta um verslanir, sitja á kaffihúsum eða njóta sólarinnar við Miðjarðarhafið.
Halla Hrund Arnardóttir er fararstjóri í ferðinni. Hún er hjúkrunarfræðingur sem starfar á heilsugæslu og hefur mikinn áhuga á útivist og fjallgöngum. Halla Hrund þekkir svæðið vel og hefur sjálf gengið þar oft. Hún hlakkar mikið til að leiða hópinn og deila með ykkur þessari einstöku upplifun.
Innifalið:
- Beint flug með Icelandair 1 innrituð 23 kg taska handfarangur
- Gisting á Villa Romita.
- Morgunverður og þriggja rétta kvöldverður alla daga.
- Gönguferðir með ítölskum leiðsögumanni.
- Pizzagerðarnámskeið og vínsmökkun.
- Bátsferð til Capri og inngangur að Vesúvíus.
- Akstur til og frá flugvelli í róm og allur tengdur dagskránni.
Ferðin er háð lámarksþáttöku að minnst 12 manns.
Verð: 385.000 kr. á mann í tveggja manna herbergi.
65.000 kr. auka fyrir einstaklings herbergi.
Úrval Útsýn gjafabréfin sem Orlofssjóður Fíh selur er hægt að nota upp í ferðina.
Hámark tvö gjafabréf per bókun per mann.
Ekki er hægt að nota Icelandair gjafabréf.
Athugið að ferðin er ekki styrkhæf í Starfsþróunarsetur Fíh eða styrktarsjóð.
Allar upplýsingar um ferðina veitir Úrval Útsýn og er áhugasömum bent á að hafa samband við ferðaskrifstofuna með tölvupósti til að skrá sig.
Skráningarfrestur er til 26. júní.

Dagskrá
Dagur 1. Ferðadagur 1. okt 2026
Flogið með Icelandair frá Keflavík til Rómar.
kl 07:50 og lent 14:35.
Rúta keyrir síðan hópinn til Sorrento/Amalfi.
Akstur: 3 tímar
Innritum okkur á hótel Villa Romita.
Dagur 2. Sólskinseyjan Capri 2. okt 2026
Eftir morgunverð förum við niður á höfn, þar sem bátur flytur okkur yfir til Capri. Þar bíður litríkur heimur, þröngar götur, blómaskreytt hús og hið líflega torg Piazzetta – hjarta eyjarinnar. Dagurinn er tileinkaður því að rölta, njóta og drekka í sig þennan suðræna unað.
Göngutími: 3 klst
Hækkun: 250 M
Erfiðleikastig: Auðvelt
Dagur 3. Stígur guðanna og Positano 3. okt 2026
3.október. Eftir morgunverð reimum við á okkur gönguskónna og fylgjum leiðsögumanni eftir hinum stórbrotna stíg guðanna. Útsýnið er engu líkt – fjöllin falla í sjó fram og blámi Miðjarðarhafsins umlykur okkur. Við borðum nestið okkar í náttúrunni áður en við endum daginn í hinu litríka þorpi Positano.
Göngutími: 4 Klst.
Hækkun: 350 m
Erfiðleikastig: Miðlungs
Dagur 4. Frjáls dagur til að slaka á og njóta 4. okt 2026
Dagurinn er tilvalinn til afslöppunar. Skemmtilegt er að kíkja í verslanir og fara á kaffihús eða fara niður að bátahöfninni í Sorrento en þar er úrval góðra veitingastaða. Einnig er upplagt er að nota aðstöðuna við hótelið.
Dagur 5. Vesúvius og vínsmökkun 5. okt 2026
Eftir morgunverð förum við með rútu upp í 1000 metra hæð í návígi við hina frægu eldfjalladís – Vesúvíus. Við göngum upp hlíðar fjallsins í fylgd jarðfræðings og sjáum hraun hina fyrri ára en síðast gaus 1906 og 1944. Þessi ganga fer með okkur í gegnum jarðfræðisögu þúsunda ára en vísar einnig hvernig líf vaknar úr ösku elds og lands. Einnig horfum við niður á Napólíflóann. Að göngunni lokinni förum við í vínsmökkun með hefðbundnum ítölskum kræsingum – sönn veisla fyrir bragðlaukana.
Göngutími: 3 Klst.
Hækkun: 300 m
Erfiðleikastig: Miðlungs
Dagur 6. Frjáls dagur til að slaka á og njóta 6. okt 2026
Tími til eigin afnota og afslöppunar.
Dagur 7. Pizzugerð og ganga til Sorrento 7. okt 2026
Engin ferð til Ítalíu væri fullkomin án þess að prófa að búa til sína eigin pizzu! Við lærum listina beint frá heimamönnum áður en við leggjum í fallega göngu sem leiðir okkur niður til Sorrento. Leiðsögumaður er með allan daginn og rúta tryggir þægilegar ferðir.
Göngutími: 3.5 Klst.
Hækkun: 380 m
Erfiðleikastig: Miðlungs
Dagur 8. Ferðadagur 8. okt 2026
Eftir morgunverð er komin tími til að pakka niður og gera sig klára fyrir heimferð. Rúta kemur um 10:00 og keyrir okkur til Rómar þar sem við fljúgum síðan heim með Icelandair klukkan 15:45 og lendum í Keflavík 18:40. Lok ferðar.





