Fara á efnissvæði
Viðburður

Heilbrigðisþing um geðheilsu barna og ungmenna

Fimmtudaginn 26. nóvember kl 08:00-16:00 Hótel Hilton Reykjavík, skráning hafin.

Dagsetning
26. nóvember 2026
Tími
08:00-16:00
Staðsetning
Hótel Hilton

Það þarf þorp…

Heilbrigðisþing um geðheilsu barna og ungmenna

Alma D. Möller heilbrigðisráðherra boðar til árlegs heilbrigðisþings 26. nóvember næstkomandi. Þingið verður að þessu sinni helgað áhrifaþáttum geðheilsu barna, lágþröskuldaþjónustu og nýjungum í geðheilbrigðisþjónustu við börn. Þingið verður haldið á hótel Hilton Reykjavík, Suðurlandsbraut 2, einnig verður unnt að fylgjast með í beinu streymi frá þinginu.

Þingið hefst með skráningu og léttri hressingu kl. 8.00.
Formleg dagskrá hefst kl. 8.30 og þinglok verða um kl. 16.00.

Upplýsingar um dagskrá þingsins og fyrirlesara má sjá á vef ráðuneytisins.

Þess er vinsamlega óskað að upplýsingum um þingið verði komið áfram til áhugasamra og ef kostur er vakin athygli á því á vef og eftir atvikum samfélagsmiðlum.

Með von um góðar undirtektir og að sem flestir sjái sér fært að sitja þingið.

Hægt er að skrá sig HÉR.