- Dagsetning
- 7. október 2026
- Staðsetning
- Hótel Reykjavík Grand
Markmið hjúkrunarþingsins er að marka stefnu Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga í málefnum sérfræðinga í hjúkrun, efla faglega umræðu og stuðla að áframhaldandi þróun sérfræðiþekkingar innan stéttarinnar.
Á hjúkrunarþinginu verða bæði fyrirlestrar og vinnustofur sem eru sérsniðnar að umfjöllunarefni þingsins. Fyrirlestrar verða í streymi.
DAGSKRÁ
08:40–09:10 Skráning og morgunhressing
09:10–09:25 Helga Rósa Másdóttir, formaður Fíh
Setning og ávarp (streymi)
9:25 – 9:45 Kári Árnason lektor við Námsbraut í sjúkraþjálfun og sérfræðingur í bæklunarsjúkraþjálfun
Sérfræðingshlutverkið út frá breyttri námskrá í sjúkraþjálfun – menntun til sérfræðingsréttinda (steymi)
9:45–10:05 Guðlaug Rakel Guðjónsdóttir forstjóri HSS
Sjónarhorn stjórnenda heilbrigðisþjónustu á núverandi og framtíðarhlutverk sérfræðinga í hjúkrun innan íslenskrar heilbrigðisþjónustu (streymi)
10:05-10:10 Standa upp og teygja úr sér
10:10-10:30 Birgitta Inga J. Hauksdóttir hjúkrunarfræðingur MS
Niðurstöður rannsóknar um sérfræðinga í hjúkrun hlutverk og verkefni (streymi)
10:30-11:00 Gísli Kort Kristófersson, sérfræðingur í geðhjúkrun við SAk, Prófessor í geðhjúkrun við HA
Víkkað starfssvið sérfræðinga í hjúkrun –staðan á stöðunni (streymi)
11:00-11:30 María Björg Kristjánsdóttir
Fyrirkomulag vinnustofu - hópefli
11:30-12:30 Hádegisverður
12:30-14:30 Vinnustofa
14:30–15:00 Síðdegishressing
15:00–15:50 Vinnustofa
15:50-16:00 Helga Rósa Másdóttir, formaður Fíh slítur hjúkrunarþingi
Taktu þátt í streymi!
Ertu að fylgjast með í streymi í dag? Við viljum heyra frá þér.
Á meðan vinnustofan stendur yfir getur þú sent inn svör við eftirfarandi spurningum:
- Hvernig sérð þú þróun sérfræðinga í hjúkrun fyrir þér á næstu 5-10 árum?
- Hver eru helstu tækifærin varðandi þróun sérfræðinga í hjúkrun?
- Hverjar eru helstu hindranir sem standa í vegi fyrir þróun sérfræðinga í hjúkrun?
- Ef þú mættir velja eina aðgerð til að beita þér fyrir þróun sérfræðinga í hjúkrun,
- hver væri hún? Hvað er mikilvægast að við gerum?
Smelltu mynd af QR kóðanum hér að neðan og svaraðu könnuninni!
Innsend svör verða tekin saman með niðurstöðum vinnustofunnar.
Allir þátttakendur hjúkrunarþingsins munu fá senda samantekt þegar niðurstöður
vinnustofunnar liggja fyrir.






