Fara á efnissvæði
Viðburður

Kvennaverkfall 24. október

Við mætum kl. 14:00 föstudaginn 24. október niður í Sóleyjargötu og fáum innblástur frá konunum og kvárunum sem ruddu brautina. Göngum saman í gegnum áfanga í baráttusögu kvenna og kvára — og tökum svo höndum saman á útifundi á Arnarhóli í Reykjavík eða okkar heimabyggð.

Dagsetning
24. október 2025
Tími
14:00 - 16:00
Staðsetning
Sóleyjargata 25, 101 Reykjavík - Arnarhóll - Þín heimabyggð

STUNDIN ER RUNNIN UPP!

50 árum síðar og baráttunni er ekki lokið. Tilkynningum um ofbeldi fjölgar, launamunur kynjanna eykst og það er misrétti í verkaskiptingu heima fyrir. Jafnrétti er ekki í augsýn.

Nú förum við í Kvennaverkfall. Við mætum og fáum innblástur frá konunum og kvárunum sem ruddu brautina. Göngum saman í gegnum áfanga í baráttusögu kvenna og kvára — og tökum svo höndum saman á útifundi á Arnarhóli í Reykjavík eða okkar heimabyggð.

Við ætlum að breyta samfélaginu saman. Fyrir okkur, fyrir konur og kvár, fyrir framtíðina. Ekkert fær okkur stöðvað.

Dagskráin verður tvíþætt; fyrri hlutinn er söguganga um áfanga í kvennabaráttunni og sá seinni er útifundur við Arnarhól.

SÖGUGANGA UM MERKA ÁFANGA Í ÍSLENSKRI KVENNABARÁTTU

„Sko mömmu, hún hreinsaði til”

Baráttufólk fortíðarinnar hefur tekið til í jafnréttismálum ótal sinnum — en svo er alltaf draslað aftur til. Til að minnast þess að hálf öld er liðin frá fyrsta Kvennaverkfallinu, blása skipuleggjendur til sögugöngu, þar sem við sækjum innblástur í áfangasigra kvennabaráttunnar í áranna rás. Sögugangan hefst við Sóleyargötu kl. 14:00 og nær að Arnarhóli þar sem útifundur verður að sögugöngu lokinni.

ÚTIFUNDUR VIÐ ARNARHÓL

Við mætum þar til við þurfum ekki að mæta lengur!

Við sameinumst við Arnarhól þar sem við tökum höndum saman í baráttunni fyrir því að stjórnvöld efni kröfur Kvennaárs. Tónlistaratriði, ræður og kvennakraftur — það jafnast ekkert á við að finna fyrir samstöðukrafti kvenna og kvára.

Nánari upplýsingar á kvennaar.is