- Dagsetning
- 23 - 26. nóvember 2026
- Tími
- 09:00-15:00
- Staðsetning
- Háskólanum á Akureyri (Stofu M102)
Miðpunktur — Samstarfsvettvangur rannsókna í sjálfsvígsfræðum
Á málþinginu verður undirritaður samstarfssamningur milli Háskóla Íslands, Háskólans á Akureyri, Háskólans í Reykjavík, embættis landlæknis, Landspítala og Sjúkrahússins á Akureyri. Með honum er Miðpunktur stofnaður, samstarfsvettvangur rannsókna í sjálfsvígsfræðum. Markmið Miðpunkts er að efla rannsóknir og samstarf á þessu sviði og að miðla gagnreyndri þekkingu til fræðasamfélagsins, stjórnvalda og annarra sem málið varðar.
Áslaug Ásgeirsdóttir, rektor HA, setur málþingið og Alma D. Möller heilbrigðisráðherra flytur ávarp. Á dagskrá eru fjölbreytt erindi fræðafólks og fagfólks, meðal annars um:
- áhættuþætti sjálfsvíga og þróun þeirra
- reynslu ungra karlmanna sem lifað hafa af sjálfsvígstilraun
- félagslegan stuðning og sjálfsvígshegðun
- sjálfsvígshættumat á bráðamóttöku
- forvarnarstarf á borð við Gulan september og Headspace
Dagskránni lýkur með umræðum um næstu skref.
Málþingið á erindi við alla sem starfa að geðheilbrigðismálum og sjálfsvígsforvörnum, hvort sem er innan félagasamtaka, heilbrigðisþjónustu, sveitarfélaga eða rannsókna. Aðgangur er ókeypis og öll eru velkomin. Þátttakendur fá málþingsgögn, kaffiveitingar og hádegismat, og því biðjum við fólk að skrá sig. Við hvetjum ykkur til að mæta og deila boðinu áfram innan ykkar raða.
Skráning:https://www.unak.is/is/midpunktur-skraning
Dagskrá og nánari upplýsingar:https://www.unak.is/is/samfelagid/vidburdir/midpunktur





