- Dagsetning
- 16. mars 2026
Málþingið fer fram í stofu M102 í Háskólanum á Akureyri og verður einnig í beinu streymi.
Boðið verður upp á kaffi og léttar veitingar og verður léttur hádegisverður að málþingi loknu
Mikilvægt er að þátttakendur sem mæta á staðinn skrái sig til þátttöku.
Á málþinginu koma saman fræðimenn og fagfólk til að kynna nýjustu sjálfsvígsrannsóknir ásamt fulltrúum þjónustu- og samfélagsúrræða sem sinna sjálfsvígsforvörnum á Íslandi.
Málþingið markar mikilvægan áfanga þar sem kynnt verður samstarfsverkefni Háskólans á Akureyri, Háskóla Íslands, Háskólans í Reykjavík, Embættis landlæknis og Landspítala, um stofnun sameiginlegs rannsóknarvettvangs og munu samstarfsaðilar formlega skrifa undir viljayfirlýsingu vegna samstarfsins á málþinginu.





