- Dagsetning
- 2. febrúar 2027
- Tími
- 18.30-20.30
- Staðsetning
- Fjarnám
Vinnustofan er ætluð heilbrigðisstarfsfólki sem sinnir samtalsmeðferð, s.s. félagsráðgjöfum, hjúkrunarfræðingum og sálfræðingum sem vill dýpka þekkingu sína, efla faglega færni og öðlast aukið öryggi í vinnu með fólki sem upplifir sorg og missi.
CFT og verkfæri hennar samþættast vel öðrum meðferðarformum og er góð viðbót þegar unnið er með sorgarvinnu, sjálfsgagnrýni og skömm.
Vinnustofan hentar bæði þeim sem eru að stíga sín fyrstu skref í sorgarvinnu og CFT sem og þeim sem hafa víðtækari reynslu og vilja dýpka þekkingu sína og færni.
Fyrirkomulag: Fjarnám, þriðjudagana 2., 9., 16. og 23. febrúar, 2027. kl. 18:30–20:30.
Leiðbeinandi: Anna Sigurðardóttir, sálfræðingur og sérfræðingur í klínískri sálfræði fullorðinna.
Ef óskað er eftir frekari upplýsingum er hægt að hafa samband á netfangið [email protected]





