Fara á efnissvæði
Viðburður

Fyrsta ráðstefna fagdeildar svefnhjúkrunar

Svefnhjúkrun2026: Ráðstefna um rannsóknir hjúkrunarfræðinga sem snúa að einhverju leyti að svefni.

Fagdeild svefnhjúkrunar stendur að ráðstefnu 1. október frá kl 16:30-18:30 (eða 19:00, fer eftir fjölda erinda) á Teams. Ráðstefnan verður ekki tekin upp. Á fyrstu ráðstefnu Fagdeildar svefnhjúkrunar verða kynntar rannsóknir hjúkrunarfræðinga sem snúa að einhverju leyti að svefni. Ráðstefnan er vettvangur fyrir hjúkrunarfræðinga til að miðla nýjustu þekkingu um svefn og sjá hvað aðrir hjúkrunarfræðingar eru að rannsaka. Ráðstefnan er fyrir meðlimi Fagdeildar svefnhjúkrunar en aðrir hjúkrunarfræðingar eru velkomnir og allir hjúkrunarfræðingar sem stunda rannsóknir á svefni eru hvattir til að senda inn erindi.

Dagsetning
1. október 2026
Tími
16:30 - 18:30
Staðsetning
Teams

Ókeypis er á ráðstefnuna og skráning hjá gjaldkera fagdeildarinnar fyrir 15.september [email protected]

Sendið tölvupóst með eftirfarandi upplýsingum: Nafn, kt. netfang, sími og vinnustaður. Setjið SVEFNHJUKRUN2026 í subject.

Skilafrestur ágripa er til 4.sept 2026

Erindum á ráðstefnuna skal skila til ritara fagdeildarinnar: [email protected]

Erindin þurfa að vera um óbirtar rannsóknir sem tengjast svefni. Ágrip skulu vera hámark 300 orð. Nafn, staða og netfang allra höfunda þarf að koma fram og telst ekki með orðafjölda. Uppbygging ágripa: Lýsandi titill, Inngangur, Markmið, Aðferð, Niðurstöður, Ályktanir.

Lengd erinda

Fer eftir fjölda erinda en verður að hámarki 15 mínútna erindi og 5 mínútur fyrir spurningar.

Glærur

Fyrir þau sem senda inn ágrip, hafið stutta kynningu á ykkur sjálfum á fyrstu glæru og vinsamlegast sendið glærur í síðasta lagi klukkan 18 þann 29.sept. á formann fagdeildarinnar [email protected] Aðalbjörg mun senda fundinn út og stýra fundinum, hún getur þá deilt glærum þátttakenda ef einhverjir hnökrar koma upp.

Það væri gaman að sjá ykkur sem flest