Fara á efnissvæði
Námskeið

Sár og sárameðferð

Námskeið 8. og 9. október 2026. Sár og sárameðferð er stór partur af starfi hjúkrunarfræðinga hvar sem þeir starfa og því er mikilvægt að hafa grundvallarþekkingu á mati og meðferð sára.

Dagsetning
8 - 9. október 2026
Tími
08:30 - 16:00
Staðsetning
Salur Fíh, Suðurlandsbraut 22, Reykjavík
Verð
59.000 kr.

Til að sár grói þarf heildræna nálgun og grundvallaratriðið er að geta greint orsök sára svo réttri meðferð sé beitt. Farið verður yfir þessa þætti í námskeiðinu og tæpt á ýmsu, t.d. mat á sárum, sárahreinsun, umbúðir og efni. Enn fremur verður farið yfir mismunandi tegundir sára, meðferðir og mýtur.

Námskeiðið verður á fjölbreyttu kennsluformi, t.d. fyrirlestrar, vinnusmiðja og tilfelli.

Í lok námskeiðs munu þátttakendur:

  • Geta greint mismunandi sáragerðir
  • Geta beitt klínískri ákvarðanatöku byggt á gagnreyndri þekkingu við mat og meðferð sára
  • Geta sinnt sárameðferð af meira öryggi.

Hámarksfjöldi þátttakenda er 30.

Verð er kr. 59.000. Skráning staðfestist við greiðslu þátttökugjalds. Hægt er að sækja um endurgreiðslu í Starfsþróunarsetur Fíh.

Innifalið í verðinu eru morgun- og síðdegishressing báða dagana. Góður tími gefst í hádeginu til að fara úr húsi og fá sér hádegismat.

Umsjón

Vigdís Friðriksdóttir er sérfræðingur í hjúkrun sjúklinga með sár. Hún lauk námi frá Háskóla Íslands BSc. í hjúkrunarfræði árið 2005 og diplómanámi í hjúkrun aðgerðasjúklinga árið 2009. Vigdís útskrifaðist frá sama skóla árið 2019 með MSc. í hjúkrun, með áherslu á hjúkrun sjúklinga með brunasár. Vigdís starfar á Sáramiðstöð Landspítalans og er stundakennari við Háskóla Íslands. Hún situr í stjórn Samtaka um sárameðferð á Íslandi (SUMS).

Berglind Guðrún Chu er sérfræðingur í hjúkrun sjúklinga með smitsjúkdóma með áherslu á húðsýkingar. Berglind lauk meistaranámi frá Hjúkrunar og ljósmóðurfræðideild HÍ árið 2011. Hún hefur unnið lengst af á Smitsjúkdómadeild Landspítalans og sinnt sérfræðingsstörfum samhliða frá árinu 2015 og sinnir meðal annars ráðgjöfum um húðsýkingar og sár. Hún er aðjúnkt við Hjúkrunar og ljósmóðurfræðideild HÍ og stundakennari við HA. Berglind hefur haldið fyrirlestra og skrifað greinar tengdum sýkingum og sárum. Hún er fyrrum stjórnarmaður SUMS (Samtök um sárameðferð) og hefur um áraraðir unnið í þrýstingssáravörnum fyrir Landspítala.

Elva Rún Rúnarsdóttir er sérfræðingur í hjúkrun sjúklinga með sár. Hún lauk námi frá Háskólanum á Akureyri með BSc í hjúkrunarfræði árið 2012 og MSc frá Háskóla Íslands árið 2020 þar sem hún lagði áherslu á langvinn sár. Elva starfar í þverfaglegu fótameinateymi göngudeildar innkirtla- og efnaskipta á Landspítala þar sem hún sinnir einstaklingum með sykursýki og fótasár. Áður starfaði Elva á Sáramiðstöð Landspítalans. Elva er einnig aðjúnkt við Háskóla Íslands og situr í stjórn Samtaka um sárameðferð á Íslandi (SUMS).