- Dagsetning
- 28 - 31. október 2025
Skráning er hafin á námskeiðið Seigla, streita, samskipti og meðvirkni sem verður haldið á Hótel Grímsborgum 28.-31. október 2025.
Vinsæl námskeið um efni sem á brýnt erindi dag, í umhverfi sem tekur sífellt hraðari breytingum.
Námskeiðið er í samvinnu við Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga og hægt er að sækja um endurgreiðslu í starfsþróunarsetur Fíh.
Áhersla er lögð á seiglu, streitu, svefn og líkamsklukkuna, álag og ósjálfráða taugakerfið, tengsl, meðvirkni - einkenni og áhrif á sambönd og samskipti.
Námskeiðið er í formi fyrirlestra, æfinga og hópavinnu. Boðið er upp á gómsætan mat, gönguferðir út í náttúruna, núvitundaræfingar, djúpslökun og góða hvíld.
Dagskráin hefst kl. 11.00 þriðjudaginn 28. okt. og lýkur kl. 13.30 föstudaginn 31. okt.
Innifalið: Námskeið, matur og gisting í 3 nætur í nærandi og fallegu umhverfi, djúpslökun (yoga nidra).
Takmarkaður fjöldi þátttakenda.
Verð kr. 214.000 í tveggja manna herbergi og kr. 249.000 í einstaklingsherbergi.
Nánari upplýsingar og skráning: https://forms.gle/UptWZFRmhj2teTXh7
Viðburðurinn á Facebook: https://fb.me/e/adht2f7ZH

Kristín Sigurðardóttir, slysa- og bráðalæknir hefur sinnt kennslu, heilsueflingu og forvörnum frá því í Læknadeild HÍ. Kristín kennir við Læknadeild HÍ og HR. Hún situr í Fræðslustofnun og Lýðheilsuráði LÍ. Hún sinnir fyrirlestrahaldi og fræðslu fyrir fyrirtæki og stofnanir.
Gyða Dröfn Tryggvadóttir, lýðheilsufræðingur EMPH og meðferðaraðili í áfalla-og uppeldisfræðum Piu Mellody. Gyða rekur eigin stofu, kennir í HR og sinnir auk þess fyrirlestrahaldi og fræðslu. Hún stendur einnig fyrir heilsutengdum málþingum og námskeiðum. Hún hefur iðkað og kennt Zen hugleiðslu í 26 ár.





