Fara á efnissvæði
Seigla, streita, samskipti og meðvirkni
Námskeið

Seigla, streita, samskipti og meðvirkni

Heildræn nálgun á líðan og heilsu í lífi og starfi. Hótel Grímsborgum dagana 5.- 8. maí 2026. Vinsælt og áhrifaríkt námskeið sem eflir þig í lífi og starfi!

Dagsetning
5 - 8. maí 2026

Skráning er hafin á námskeiðið Seigla, streita, samskipti og meðvirkni sem verður haldið á Hótel Grímsborgum 5.-8. maí 2026.

Vinsælt og áhrifaríkt námskeið sem eflir þig í lífi og starfi!

Námskeiðið er í samvinnu við Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga og hægt er að sækja um endurgreiðslu í Starfsþróunarsetur Fíh.

Áhersla er lögð á seiglu, streitu, svefn og líkamsklukkuna, álag og ósjálfráða taugakerfið, tengsl, meðvirkni - einkenni og áhrif á sambönd og samskipti.

Námskeiðið er í formi fyrirlestra, æfinga og hópavinnu. Boðið er upp á gómsætan mat, gönguferðir út í náttúruna, núvitundaræfingar, djúpslökun og góða hvíld.

Dagskráin hefst kl. 11.00 þriðjudaginn 5. maí og lýkur kl. 13.30 föstudaginn 8. maí.

Innifalið: Námskeið, matur og gisting í þrjár nætur í nærandi og fallegu umhverfi.

Takmarkaður fjöldi þátttakenda.

Verð kr. 219.000 í tveggja manna herbergi og kr. 256.000 í einstaklingsherbergi.

Nánari upplýsingar og skráning: https://forms.gle/cBX7A79bmwS57Z8U8

Viðburðurinn á Facebook: https://fb.me/e/6BB9aMS0r

Kristín Sigurðardóttir, slysa- og bráðalæknir hefur sinnt kennslu, heilsueflingu og forvörnum frá því í Læknadeild HÍ. Kristín kennir við Læknadeild HÍ og HR. Hún situr í Fræðslustofnun og Lýðheilsuráði LÍ. Hún sinnir fyrirlestrahaldi og fræðslu fyrir fyrirtæki og stofnanir.

Gyða Dröfn Tryggvadóttir, lýðheilsufræðingur EMPH og meðferðaraðili í áfalla-og uppeldisfræðum Piu Mellody. Gyða rekur eigin stofu, kennir í HR og sinnir auk þess fyrirlestrahaldi og fræðslu. Hún stendur einnig fyrir heilsutengdum málþingum og námskeiðum. Hún hefur iðkað og kennt Zen hugleiðslu í 26 ár.