Fara á efnissvæði
Hótel Grímsborgir - heill heimur
Námskeið

Seigla, streita, samskipti og meðvirkni 2026

Heildræn nálgun á líðan og heilsu í lífi og starfi. Námskeiðiðfer fram á Hótel Grímsborgum 06.-09. október 2026.

Vinsælt og áhrifaríkt námskeið sem eflir þig í lífi og starfi!

Dagsetning
6 - 9. október 2026
Staðsetning
Hótel Grímsborgir

Námskeiðið er í samvinnu við Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga og hægt er að sækja um endurgreiðslu í Starfsþróunarsetur Fíh.

Á námskeiðinu er farið yfir allt það sem þú vilt vita um seiglu, streitu, álag og ósjálfráða taugakerfið, svefn, líkamsklukkuna, meðvirkni - einkenni og áhrif á líf og líðan.

Námskeiðið er í formi fyrirlestra, æfinga og hópavinnu. Boðið er upp á heilnæman og gómsætan mat, gönguferðir út í náttúruna, núvitundaræfingar, djúpslökun og góða hvíld.

Dagskráin hefst kl. 11.00 þriðjudaginn 06. okt. og lýkur kl. 13.30 föstudaginn 09. okt.

Innifalið: Námskeið, matur og gisting í 3 nætur í nærandi og fallegu umhverfi.

Takmarkaður fjöldi þátttakenda.

Verð kr. 219.000 í tveggja manna herbergi og kr. 256.000 í einstaklingsherbergi.

Leiðbeinendur

Kristín Sigurðardóttir, slysa- og bráðalæknir hefur sinnt kennslu, heilsueflingu og forvörnum frá því í læknadeild. Kristín kennir við læknadeild HÍ, er gestakennari í HR og situr í Lýðheilsuráði LÍ. Hún er vinsæll fyrirlesari og sinnir fyrirlestrahaldi og fræðslu fyrir fyrirtæki og stofnanir.

Gyða Dröfn Tryggvadóttir, lýðheilsufræðingur EMPH og meðferðaraðili í áfalla-og uppeldisfræðum Piu Mellody. Gyða rekur eigin stofu, er gestakennari í HR og sinnir fyrirlestrahaldi og fræðslu. Hún stendur einnig fyrir heilsutengdum málþingum og námskeiðum. Hún hefur iðkað og kennt Zen hugleiðslu í 26 ár.