Fara á efnissvæði
Námskeið

Seigla, streita, samskipti og meðvirkni

Heildræn nálgun á líðan og heilsu í lífi og starfi. Hótel Grímsborgum dagana 24.- 27. febrúar 2026.

Dagsetning
24 - 27. febrúar 2026

Skráning er hafin á námskeiðið Seigla, streita, samskipti og meðvirkni sem verður haldið á Hótel Grímsborgum 24.-27. febrúar 2026.

Vinsæl námskeið um efni sem á brýnt erindi dag, í umhverfi sem tekur sífellt hraðari breytingum.

Námskeiðið er í samvinnu við Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga og hægt er að sækja um endurgreiðslu í Starfsþróunarsetur Fíh.

Áhersla er lögð á seiglu, streitu, svefn og líkamsklukkuna, álag og ósjálfráða taugakerfið, tengsl, meðvirkni - einkenni og áhrif á sambönd og samskipti.

Námskeiðið er í formi fyrirlestra, æfinga og hópavinnu. Boðið er upp á gómsætan mat, gönguferðir út í náttúruna, núvitundaræfingar, djúpslökun og góða hvíld.

Dagskráin hefst kl. 11.00 þriðjudaginn 24. febrúar og lýkur kl. 13.30 föstudaginn 27. febrúar.

Innifalið: Námskeið, matur og gisting í 3 nætur í nærandi og fallegu umhverfi, djúpslökun (yoga nidra).

Takmarkaður fjöldi þátttakenda.

Verð kr. 214.000 í tveggja manna herbergi og kr. 249.000 í einstaklingsherbergi.

Nánari upplýsingar og skráning: https://forms.gle/7djdtnfEiXzLf4TZ7

Viðburðurinn á Facebook: https://www.facebook.com/events/hotel-grimsborgir/seigla-streita-samskipti-meðvirkni/2580243818996074/

Kristín Sigurðardóttir, slysa- og bráðalæknir hefur sinnt kennslu, heilsueflingu og forvörnum frá því í Læknadeild HÍ. Kristín kennir við Læknadeild HÍ og HR. Hún situr í Fræðslustofnun og Lýðheilsuráði LÍ. Hún sinnir fyrirlestrahaldi og fræðslu fyrir fyrirtæki og stofnanir.

Gyða Dröfn Tryggvadóttir, lýðheilsufræðingur EMPH og meðferðaraðili í áfalla-og uppeldisfræðum Piu Mellody. Gyða rekur eigin stofu, kennir í HR og sinnir auk þess fyrirlestrahaldi og fræðslu. Hún stendur einnig fyrir heilsutengdum málþingum og námskeiðum. Hún hefur iðkað og kennt Zen hugleiðslu í 26 ár.