Fara á efnissvæði
Viðburður

Sumarferð ÖFíh 2026

Sumarferðin öldungadeildar Fíh í ár verður farin fimmtudaginn 4. júní n.k. um vestanverðan Borgarfjörð.

Dagsetning
4. júní 2026

Um er að ræða náttúruskoðunar- og menningarferð. Farið verður í tveimur rútum, sem alls taka 80 manns. Lagt verður af stað frá Húsgagnahöllinni á Ártúnshöfða kl. 10:00 og keyrt sem leið liggur í Borgarfjörðinn. Náttúruskoðun hefst frá golfvellinum við Bifröst; að Glanna og Paradísarlaut. Létt gönguferð á sléttum gangstígum í gríðarlega fallegu umhverfi. Eftir það er ekið í Reykholtsdalinn og snæddur hádegisverður á veitingastaðnum Hverinn á Kleppjárnsreykjum. Að loknum hádegisverði er farið að Reykholti þar sem við fáum leiðsögn um staðinn og sögu hans. Fordrykkur verður hjá Ástu Möller í Fornastekk í Stafholtstungum og kvöldverður á Hótel Varmalandi. Komið í bæinn um kl. 21:30.

Skráning fer fram með sama hætti og áður að greitt er skráningagjald kr. 19.500,- á bankanúmer öldungadeildarinnar sem er 0526 14 120000 og kennitala 691093 2639.

Dagsplan

10:00 Lagt af stað frá bílastæðinu við Húsgagnahöllina í Ártúnshöfða.

11:30 Komið að golfvellinum í Bifröst/bílastæðinu við Glanna, ca 1½ tíma keysla frá Reykjavík. Skoðaður Glanni og Paradísarlaut. Róleg ganga með stoppi, ca. 45 mín.

12:30 Keyrt suður Norðurárdal að Kleppjárnsreykjum í Reykholtsdal, ca. 30 mín keyrsla.

13:00 Hádegismatur, veitingastaðurinn Hverinn á Kleppjárnsreykjum, ca. 50 mín.

Súpuhlaðborð: Sveppasúpa, tómatsúpa og gulrótarsúpa sem eru gerðar frá grunni úr hráefni sem eru ræktuð í eigin gróðurhúsum og tínd í heimasveit. Brauð og smjör fylgir með súpum. Kaffi á eftir.

13:50 Keyrt að Reykholti. 10 mín keyrsla.

14:00 Leiðsögn um Reykholtsstaðinn, ca. 1 klst og 45 mín.

Skoðuð stytta Snorra Sturlusonar, Héraðsskólinn, Snorralaug, fornleifasvæðið. Litið inn í gömlu kirkjuna og síðan í nýju kirkjuna þar sem sagt er frá henni og byggingasögu hennar og sögu staðarins í nútíma. Rætt um Snorra Sturluson, haldið inn í bókasafnið, sagt frá Snorrastofu og starfsemi hennar.

15:45 Keyrt frá Reykholti í Stafholtstungur ca.15 mín keyrsla.

16:00 Fordrykkur hjá Ástu Möller form. Öfíh, í Fornastekk í Stafholtstungum.

17:20 Keyrt frá Fornastekk að Hótel Varmalandi, ca. 10 mín keyrsla

17:30 Kvöldverður í veitingastaðnum Calor á Hótel Varmalandi.

Aðalréttur: Lamb með demi-Glaze, kartöflumús og grænmeti.

Eftirréttur: Skyrmús með hvítsúkkulaði og hindberja/bláberja granitu

19:45 Lagt af stað til Reykjavíkur. 1 klst, 15 mín keyrsla.

21.00-21.30 Komið í bæinn.

Drykkir á málsverðum eru á eigin kostnað, en vatn á borðum.