Fara á efnissvæði
Námskeið

Þrautseigja í framlínunni

Námsstefna fyrir viðbragðsaðila í neyðarþjónustu um áskoranir í starfi og andlega líðan. Hótel Reykjavík Grand 17. - 18. september 2026

Dagsetning
17 - 18. september 2026
Staðsetning
Hótel Reykjavík Grand
Verð
68.000 kr.

Í hópi hjúkrunarfræðinga starfar fólk við mismunandi krefjandi aðstæður. Fólk sem er mjög hæft, samviskusamt og stendur sig vel undir álagi. Einmitt sá hópur getur þó verið útsettur fyrir gildrum fullkomnunaráráttu, óraunhæfum kröfum til sjálfs sín og harðri innri gagnrýni þegar eitthvað fer ekki nákvæmlega eins og best verður á kosið.

Markmið fræðslunnar er að varpa ljósi á hvernig þessi mynstur geta smám saman aukið streitu, dregið úr seiglu og haft áhrif á líðan og starfsánægju, jafnvel hjá mjög sterkum starfsmönnum.
Einnig eru kynnt hagnýt verkfæri til að efla heilbrigt sjálfsmat, raunhæfar væntingar og uppbyggilegri innri rödd. Slík fræðsla getur nýst bæði til forvarna og til að styðja áframhaldandi vellíðan og árangur í krefjandi starfi.

Námsstefnan er skipulögð af sálfræðistofunni Sálfræðingarnir.

Verð fyrir þátttöku á námsstefnu er 68.000 kr. Bæði ráðstefnudagur og allar vinnustofur eru innifaldar í því verði. Möguleiki er á endurgreiðslu úr stéttarafélagi eða frá vinnustað.

Helstu vinnustofur eru haldnar tvisvar sinnum.