- Dagsetning
- 29. apríl 2026
Stutt lýsing
Á Vöðvaverndardeginum í ár verður sjónum beint að kerfisorsökuðu færnitapi, þeim afleiðingum sem hvað minnst hefur verið rætt í tengslum við vöðvarýrnun. Kerfisorsakað færnitap er þegar skipulag og ferlar innan heilbrigðiskerfisins stuðla að því að einstaklingar tapa styrk, færni og sjálfstæði, jafnvel á meðan þeir eru í meðferð.
Rýnt verður í það hvernig biðtímar, hreyfingarleysi, fjöllyfjanotkun, ofseinkuð/frestun endurhæfingu og brotakennd þjónusta geta leitt til þess að sjúklingar útskrifast frá stofnunum við verri heilsu og með minni vöðvamassa en þeir höfðu við innlögn.
Á ráðstefnunni verða dregnar fram margar birtingarmyndir þess hvað gerist þegar við bregðumst ekki tímanlega við og má þar nefna:
• Skaðleg áhrif lyfjameðferða
• Ör áhrif nýrra lyfja á vöðvamassa (t.d. GLP-1/Ozempic)
• Áhrif kyrrsetu á vitræna og líkamleg færni
• Óskilvirka nýtingu tæknilausna (EMG, titringsmeðferð)
• Óljós og illa markaðssett lýðheilsuskilaboð
Um námskeiðið
Vöðvaverndardagurinn fer fram miðvikudaginn 29. apríl 2026.
Erlendir og íslenskir fræðimenn á sviðum heilbrigðis- og íþróttavísinda verða með erindi til að opna á samtal milli fagstétta og almennings.
Erindi ráðstefnunnar eiga upp á pallborð fagfólks og annarra áhugasamra um framþróun og umbætur í heilbrigðismálum þjóðarinnar.
Aðalfyrirlesari ráðstefnunnar er Mikel Izquierdo, einn fremsti sérfræðingur Evrópu á sviði vöðvastyrks, hreyfingar og færnitaps hjá öldruðum. Mikel er prófessor við Háskólann í Navarra og leiðir alþjóðleg rannsóknaverkefn í samstarfi við Evrópusambandið og Alþjóðaheilbrigðismálastofnunina (WHO). Hann er forstöðumaður rannsóknareiningarinnar E-FIT við lífvísindamiðstöðina NAVARRABIOMED og prófessor í íþróttalífmekaník við Fræðslumiðstöð spænsku Ólympíunefndarinnar. Hann hefur jafnframt stýrt rannsókna- og íþróttalæknisstarfi fyrir Navarra-hérað og unnið með Ólympíumeisturum og alþjóðlegum afreksliðum, þar á meðal Liverpool og Barcelona, þar sem hann kom að undirbúningi liða sem unnu Evrópukeppnir og deildarmeistaratitla. Hann hefur birt yfir 570 vísindagreinar og er leiðandi rödd á alþjóðavettvangi í baráttunni gegn sarcopeniu og veikleika.
Aðrir fyrirlesarar:
Arnar Hafsteinsson
Elísa Víf Kristínardóttir
Sigrún Sunna Skúladóttir
Ólafur Þór Gunnarsson
Fundarstjóri: Katrín Ýr Friðgeirsdóttir
Dagskrá
8:30 - Húsið opnar
9:00 - 9:15 Setning: Alma Möller heilbrigðisráðherra setur ráðstefnuna.
9:15 - 9:25 Yfirlit: Katrín Ýr Friðgeirsdóttir fundarstjóri fer yfir dagskránna.
9:30 - 10:30 Keynote - When Pills Meet Physical Activity: Integrating exercise and deprescribing to reduce polypharmacy and disability- Mikel Izquierdo
10:30 - 10:45 Kaffihlé (15 min)
10:50 - 11:10 Tímanleg endurhæfing - er það eitthvað?" – Ólafur Þór Gunnarsson
11:15 - 11:45 Styrktarþjálfun hrumra einstaklinga: Vanmat af gagnsemi og á ofmat áhættu - Arnar Hafsteinsson
11:45 - 12:30 Hádegishlé (45 min)
12:30 - 12:50 Bein og vöðvagisnun, er það eitthvað til að hafa áhyggjur af – Sigrún Sunna Skúladóttir
12:55 - 13:15 Áhrif heimaæfinga á hreysti og velsæld eldra fólks / The effects of home exercises on the physical fitness and well-being of older adults – Elísa Víf Kristínardóttir
13:15 - 13:30 Kaffihlé (15 min)
13:30 - 14:15 Pallborðsumræður
Þema: „Getum við komið í veg fyrir færnitap sem kerfið sjálft veldur?“
14:15 - 14:25 Lokaorð: Katrín Ýr Friðgeirsdóttir
Dagskrálok
Birt með fyrirvara um breytingar.
Fyrir hverja er námskeiðið
Ráðstefnan er ætluð hjúkrunarfræðingum, læknum, sjúkra- og iðjuþjálfurum, næringarfræðingum, íþróttafræðingum, lýðheilsufræðingum, stefnumótendum og öllum sem vilja hafa áhrif á hvernig við tökum á öldrun, færnitapi og vöðvarýrnun innan heilbrigðiskerfisins og samfélagsins.





