Fara á efnissvæði
Viðburður

Vorfundur Öldungadeildar Fíh

Vorfundur Öldungadeildar Fíh verður haldinn á Hótel Natura (áður hótel Loftleiðir) þann 24. febrúar 2026 kl. 14-16. Húsið opnar kl. 13:30.

Dagsetning
24. febrúar 2026
Tími
14:00 - 16:00
Staðsetning
Hótel Natura

Að starfa, njóta, efla sig á eftirlaunaárum

Hvernig viðheldur þú snerpu, virkni og vellíðan á efri árum?

Vorfundur öldungadeildarinnar er helgaður málum sem varða hjúkrunarfræðinga sem eru komnir á eftirlaun. Annars vegar er fjallað um kjör og hagsmuni hjúkrunarfræðinga eftir starfslok, hvort sem þeir halda áfram störfum eða ekki. Hins vegar verður rætt um hvaða leiðir hjúkrunarfræðinga hafa valið sér til að efla sig og njóta eftirlaunaáranna.

Dagskrá

1. Hagsmunir hjúkrunarfræðinga sem eru á eftirlaunum.

Eva Hjörtína Ólafsdóttir sérfræðingur í kjaramálum hjá Félagi íslenskra hjúkrunarfræðinga

Rætt verður um stöðu og hagsmuni hjúkrunarfræðinga sem kjósa að starfa við hjúkrun jafnhliða töku eftirlauna og almennt um hagsmuni hjúkrunarfræðinga eftir starfslok m.a. hvað varðar fjármál. Fjallað er um stöðu þeirra frá sjónarhóli félagsins, valkosti sem þeir standa frammi fyrir og hvernig þeir best geta gætt hagsmuna sinna.

Hugleiðingar og umræður.

2. Að viðhalda snerpu, virkni og vellíðan eftir starfslok

Sigríður Ólafsdóttir hjúkrunarfræðingur og stjórnarmaður í öldungadeild Fíh

Stjórnvöld hafa hvatt til átaks til að efla lífsgæði fólks sem komið er á efri ár. Hjúkrunarfræðingar eru almennt mjög virkur hópur og verður rætt um hvaða leiðir þeir hafa valið eða geta valið til að viðhalda snerpu, virkni og heilsu eftir starfslok.

Eftir innleiðingu Sigríðar verða umræður með virkri þátttöku fundargesta.

Fundarstjóri er Þórunn Ólafsdóttir stjórnarmaður í öldungadeild Fíh.

Skráning þátttöku er með hefðbundnum hætti með því að leggja inn á reiknings öldungadeildarinnar kr 2700,- .

Kennitala og reikningsnúmer öldungadeildarinnar er eftirfarandi:

Kennitala: 691093 2639. Reikningsnúmer: 526 14 120000