Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga vill óska nýútskrifuðum til hamingju með áfangann og veita hlýjar viðtökur í samfélag hjúkrunarfræðinga.
Til að fagna þessum áfanga býður Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga til hátíðarveislu í Nauthóli í Reykjavík, fimmtudaginn 17.september n.k. frá kl 17- 20.
Gleðin verður í fyrirrúmi og boðið verður upp á léttar veitingar ásamt skemmtilegri dagskrá fram á kvöld.
Nýir hjúkrunarfræðingar fá hjúkrunarheitin afhent í veislunni og þar verða einnig góð tækifæri til myndatöku.
Við viljum endilega beina því til starfandi hjúkrunarfræðinga að láta nýútskrifaða á sínum vinnustað vita.
Við hvetjum einnig alla til að byrja á því að sækja sem fyrst um aðild að Fíh og vekjum athygli á ferlinu sem þarf að klára til að fá fulla aðild – lesa má um umsóknarferlið á heimasíðu félagsins í hlekknum hér að neðan.
Sem fyrr segir eru veisluhöldin fimmtudaginn 17. september, kl. 17-20 og um að gera að taka daginn frá og setja í dagatal.
Athugið að ekki þarf að vera með samþykkta aðild að Fíh við skráninguna núna, en gert er ráð fyrir að þau sem mæta til veislu 17. september séu orðnir félagar og því um að gera að senda umsóknina sem fyrst af stað.





