Fara á efnissvæði
Frétt

Kjarasamningur við Samband íslenskra sveitarfélaga undirritaður

Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hefur skrifað undir kjarasamning við Samband íslenskra sveitarfélaga. Kynning verður haldin í næstu viku.

Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga skrifaði undir nýjan kjarasamning við Samband íslenskra sveitarfélaga í hádeginu 29. nóvember 2024.

Kjarasamningurinn er til fjögurra ára og gildir afturvirkt frá 1. apríl 2024 til 31. mars 2028. Samningurinn felur í sér almennar launahækkanir til hjúkrunarfræðinga á samningstímabilinu auk þess sem háskólamenntun er hærra metin til launa. Launatöfluauki fylgir með samningnum sem tryggir að launaþróun haldist svipuð og á almennum vinnumarkaði á tímabilinu. Þá verður starfsmenntunarsjóður efldur sem skapar aukin tækifæri fyrir hjúkrunarfræðinga til að þróa sig í starfi.

Kynning

Kynningar á samningnum fyrir hjúkrunarfræðingum sem starfa undir samningnum fer fram á fjarfundi miðvikudaginn 4. desember kl. 18. Hlekkur á fundinn er aðgengilegur á Mínum síðum.

Atkvæðagreiðsla

Samningurinn tekur gildi ef hann er samþykktur með meirihluta atkvæða. Rafræn atkvæðagreiðsla fer fram á Mínum síðum. Þar má finna nánari upplýsingar.

Á kjörskrá eru hjúkrunarfræðingar sem starfa undir kjarasamningi við Reykjavíkurborg og eru með fulla aðild að félaginu, aðrir fá ekki kjörseðil. Ef þú færð ekki kjörseðil en telur þig eiga rétt á því að taka þátt í atkvæðagreiðslunni þá er hægt að hafa samband við kjara- og réttindasvið Fíh, [email protected].