Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga skrifaði undir nýjan kjarasamning við Reykjavíkurborg síðdegis 28. nóvember 2024.
Kjarasamningurinn er til fjögurra ára og gildir afturvirkt frá 1. apríl 2024 til 31. mars 2028. . Samningurinn felur í sér almennar launahækkanir til hjúkrunarfræðinga á samningstímabilinu, þar á meðal hækkanir á persónuálagi. Launatöfluauki fylgir með samningnum sem tryggir að launaþróun hjá Reykjavíkurborg haldist svipuð og á almennum vinnumarkaði á tímabilinu. Þá verður starfsmenntunarsjóður efldur og framlag hækkað á samningstímanum.
Kynningar
Kynningar á samningnum fyrir hjúkrunarfræðingum sem starfa hjá Reykjavíkurborg fara fram á tveimur fundum í næstu viku, einum í salnum á Engjateig og einum í fjarfundi. Nákvæmar tímasetningar eru aðgengilegar á Mínum síðum.
Atkvæðagreiðsla
Samningurinn tekur gildi ef hann er samþykktur með meirihluta atkvæða. Rafræn atkvæðagreiðsla fer fram á Mínum síðum. Þar má finna nánari upplýsingar.
Á kjörskrá eru hjúkrunarfræðingar sem starfa undir kjarasamningi við Reykjavíkurborg og eru með fulla aðild að félaginu, aðrir fá ekki kjörseðil. Ef þú færð ekki kjörseðil en telur þig eiga rétt á því að taka þátt í atkvæðagreiðslunni þá er hægt að hafa samband við kjara- og réttindasvið Fíh, [email protected].