Á málþinginu var rætt um þær fjölbreyttu ógnir sem heilbrigðiskerfi þurfa að geta tekist á við. Einnig var fjallað um hlutverk fag- og stéttarfélaga hjúkrunarfræðinga í því samhengi. Meðal fyrirlesara voru þau James Buchan prófessor við Háskólann í Sidney, Kristina Háfoss framkvæmdarstjóri Norðurlandaráðs og Marcela Douglas, prófessor við Arctic University í Tromsø.
Hjúkrunarfræðingar þurfa að eiga sæti við borðið
James Buchan lagði áherslu á að viðbragðsgeta heilbrigðiskerfisins geti ekki byggst á því að einstakir hjúkrunarfræðingar geti sífellt brugðist við meira álagi. Raunverulegt viðnámsþol kallar á öfluga innviði, örugga mönnun hjúkrunarfræðinga, stöðugleika í starfsmannahaldi, skýra forystu, traust gögn og reglubundna þjálfun.
Hann talaði jafnframt um að hjúkrunarfræðingar þyrftu að eiga sæti við borðið þegar viðbragðsáætlanir eru gerðar og ákvarðanir teknar. Ekki væri nóg að kalla eftir framlagi þeirra þegar kæmi að framkvæmd ákvarðana sem aðrir hefðu þegar tekið. Meðal þeirra verkefna sem Buchan nefndi var að halda nákvæmar upplýsingar um mannafla og hæfni heilbrigðisstarfsfólks, tryggja skilvirk samskiptakerfi og undirbúa leiðir til að fjölga starfsfólki hratt þegar álag eykst. Þessar áherslur falla vel að ákalli Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga um að stofnað verði embætti yfirhjúkrunarfræðings innan íslenskrar stjórnsýslu. Slíkt embætti gæti styrkt aðkomu hjúkrunar að stefnumótun og viðbúnaði heilbrigðiskerfisins og stuðlað að því að sérþekking hjúkrunarfræðinga nýtist frá upphafi við áætlanagerð og ákvarðanatöku. Með faglegri leiðsögn og heildarsýn gæti yfirhjúkrunarfræðingur jafnframt samræmt viðbrögð við auknu álagi og stuðlað að gæðum og öryggi þjónustunnar.
Norðurlöndin þurfa að standa saman
Kristina Háfoss sagði norrænt samstarf mikilvægara en nokkru sinni í breyttu pólitísku landslagi. Hún hvatti hjúkrunarfræðinga á Norðurlöndum til að nýta fagþekkingu sína í norrænu stjórnmálasamstarfi og benti á Norðurlandaráð sem vettvang til að koma sjónarmiðum þeirra og tillögum á framfæri er varða viðbúnað.
Kristina talaði um mikilvægi þess að læra af reynslu annarra ríkja. Benti hún þá sérstaklega á viðbúnað Finna og reynslu Úkraínu af því að viðhalda heilbrigðisþjónustu á stríðstímum. Jafnframt talaði hún um að ójafnt aðgengi að heilbrigðisþjónustu gæti grafið undan bæði viðnámsþrótti heilbrigðiskerfisins og samheldni samfélagsins. Viðbúnaður snerist því ekki aðeins um birgðir og viðbragðsáætlanir, heldur einnig um félagslegt réttlæti og traust.
Ekki hægt að sjá allar ógnir fyrir
Marcela Douglas fjallaði um breyttar ógnir sem samfélög standa frammi fyrir. Hún benti á að viðbúnaður snerist ekki lengur fyrst og fremst um hernaðarvarnir eða vernd mannvirkja. Netárásir, upplýsingaóreiða, rafmagnstruflanir og aðrar svonefndar blendingsógnir geta einnig haft áhrif á borgaralegt samfélag, vinnustaði, fagfélög og einstaklinga.
Hún lýsti því hvernig truflun í einu kerfi getur fljótt breiðst út og raskað t.d. samgöngum, fjarskiptum, heilbrigðisþjónustu og aðgengi að upplýsingum. Við slíkar aðstæður þurfa stjórnendur stofnana að geta brugðist við og tekið ákvarðanir jafnvel áður en ljóst er hvað hefur gerst eða hversu umfangsmikill vandinn er.
Marcela sagði ítarlegar áætlanir nauðsynlegar en þær dygðu ekki einar og sér. Stofnanir þyrftu einnig að geta lagað sig að óvæntum aðstæðum, starfað þvert á geira og tekið ákvarðanir þegar upplýsingar væru ófullnægjandi. Traust, sterk tengsl, staðbundin þekking og örugg samskipti væru lykilatriði.
Þetta reddast
Fulltrúar þátttökuþjóðanna fluttu erindi þar sem þeir gerðu grein fyrir sjónarmiðum landa sinna varðandi viðbúnað og viðnámsþol. Erindin voru fjölbreytt og áhugaverð og var viðfangsefnið skoðað í víðu samhengi, allt frá innra starfi fag- og stéttarfélaga og oft óraunhæfum kröfum stjórnvalda til almenns viðbúnaðar í hverju landi. Formaður grænlenska félags hjúkrunarfræðinga fjallaði meðal annars um hvernig starf hennar einkenndist daglega af því að bregðast við óvæntum aðstæðum. Fulltrúi Finnlands lýsti því hins vegar að viðbúnaður væri orðinn svo sjálfsagður og samofinn daglegu lífi Finna að þeir tækju varla eftir honum lengur.
Helga Rósa Másdóttir, formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga, ræddi þær áskoranir sem Íslendingar standa frammi fyrir og gerði grein fyrir almannavarnakerfi landsins. Hún fjallaði meðal annars um hvernig unnt er að aðlaga sama viðbragðsskipulag að ólíkum aðstæðum, lagalegar skyldur hjúkrunarfræðinga í neyð og viðbrögð félagsins við stórum áföllum, svo sem rýmingu Grindavíkur og COVID-19 heimsfaraldrinum.
Helga Rósa ræddi jafnframt þá lífssýn Íslendinga sem birtist í orðatiltækinu „þetta reddast“ og taldi hana hafa reynst íslensku þjóðinni vel. Í orðatiltækinu felst blanda af bjartsýni, útsjónarsemi og yfirvegun, ásamt þeirri trú að lausn finnist þegar á reynir. Jafnframt lagði hún áherslu á að þótt orðatiltækið hefði reynst Íslendingum vel væri mikilvægt að sýna fyrirhyggju, sjá mögulegar áskoranir fyrir og skipuleggja viðbrögð með góðum fyrirvara.
Kjarnastarfsemi verði tryggð í krísuástandi
Í umræðum þátttakenda var meðal annars fjallað um hvaða þjónustu félagsmenn ættu að geta reitt sig á hjá fag-og stéttarfélögum í krísuástandi. Þar voru nefndar áreiðanlegar upplýsingar, fagleg leiðsögn, hagsmunagæsla, lögfræðiaðstoð og vernd réttinda og starfskjara.
Fag-og stéttarfélög þurfa að skilgreina hvaða kjarnastarfsemi verður að halda áfram í krísuástandi. Þá var lögð áhersla á að semja fyrir fram um vinnutíma, laun, tilfærslu starfsfólks, starfsábyrgð, vinnuvernd og hvíld við neyðaraðstæður. Viðbragðsáætlanir þurfa ekki aðeins að miðast við skammvinn áföll heldur einnig kreppur sem vara mánuðum eða árum saman og jafnvel fleiri en eitt áfall í einu.
Viðbúnaður er byggður upp á tímum stöðugleika
Meginniðurstaða málþingsins var skýr: Viðbúnaður er sameiginlegt verkefni og öflug heilbrigðisþjónusta ein af grunnstoðum hans. Örugg mönnun, gott starfsumhverfi og aðkoma hjúkrunarfræðinga að ákvarðanatöku eru lykilþættir í að tryggja að heilbrigðiskerfi standist álag þegar áföll verða. Þessar áherslur endurspeglast í sameiginlegri yfirlýsingu Samvinnu hjúkrunarfræðinga á Norðurlöndum (NNF), sem lögð var fram í lok málþingsins. Viðbúnað þarf að byggja upp áður en á reynir.






