Jónína hefur starfað á Reykjalundi frá árinu 1988 og gengt ýmsum stöðum, þar á meðal sem hjúkrunarfræðingur á lungnadeild, séð um súrefnisþjónustu, aðstoðarmaður hjúkrunarframkvæmdastjóra, gæðastjóri og sem sérfræðingur í endurhæfingarhjúkrun. Í dag sinnir lungnateymi Reykjalundar fólki á öllum aldri með langvinna lungnasjúkdóma, þeim sem þurfa endurhæfingu eftir bráð lungnaveikindi eða skurðaðgerðir.
Lungnaendurhæfing byggist á samvinnu margra fagstétta og er sniðin að þörfum hvers og eins. „Ég segi stundum að við séum með 150 teymi á Reykjalundi, við erum með 150 sjúklinga í endurhæfingu á hverjum tíma og utan um hvern sjúkling er læknir, sjúkraþjálfari, iðjuþjálfi og ef þess þarf er sálfræðingur, félagsráðgjafi og næringarráðgjafi. Þú getur talið sjúklingana og þá getur þú talið teymin á Reykjalundi,“ segir Jónína.
Endurhæfing lungnateymisins tekur á bilinu fjórar til sex vikur. „Almennt má segja að fjögurra vikna endurhæfing sé fyrir fólk sem hefur farið í skurðaðgerð þar sem tekið var biti af lunga eða eitthvað svoleiðis, sem er tiltölulega lítið inngrip þannig séð. Svo erum við með fólk sem er með langvinna lungnateppu eða með astma, það er fólk sem þarf almennt lengri tíma,“ segir hún.
„Langflestir eru á dagdeild en ef fólk er með lasið þá getum við boðið þeim að vera á sólarhringsdeild. Allir sem eru í endurhæfingunni fá ákveðna hjúkrun, ákveðna sjúkraþjálfun, ákveðna þjónustu frá læknunum og iðjuþjálfum. Það er í raun og veru sérsniðin dagskrá fyrir hvern og einn, samt er margt af þessu fólki í hópadagskrá, það fær fræðslu hjúkrunarfræðings um öndunartækni, hjúkrunarfræðingar fræða líka um notkun innöndunarlyfja. Svo erum við með dagskrá fyrir þá sem eru nýlega hættir að reykja, það er kallað Líf án tóbaks, en við höfum farið fram á að fólk sé hætt að reykja áður en það kemur á Reykjalund, aðallega til þess að það geti tekist á við þessa erfiðu endurhæfingu sem er framundan, þá þarf það að vera búið að losa sig við tóbakið. Við segjum að þetta sé ákveðin helgun, þú ætlar þér að komast í gegnum endurhæfingu og til þess ertu að vinna að losa þig við það sem skaðar þig mest.“
Nordic Lung Congress í sumar
Í sumar, 3. til 5. júní, verður haldin þverfagleg ráðstefna Nordic Lung Congress í Hörpu í Reykjavík. „Við í Fagdeild lungnahjúkrunar leggjum mikinn metnað í að standa vel að ráðstefnunni, það gerum við með Deild lungnalækna og sjúkraþjálfurum sem koma að ráðstefnunni. Þetta eru málstofur og ýmiskonar fræðsla og kynningar,“ segir Jónína. „Þær málstofur sem snúa að hjúkrun eru meðal annars um tóbaksvarnir, öndunarstuðning, meðferð við astma, það verður talað um hvernig fólki gengur að nota innöndunarlyfin sín og öllu þessu fylgir heilmikil fræðsla. Hjúkrunarmeðferð er ekki bara lyfjagjöf og eftirlit heldur byggist hún líka mikið á fræðslu og að hjálpa fólki að verða sjálfbjarga.“





