Fara á efnissvæði

Við þurfum öll á hjúkrun að halda

Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga vinnur að framgangi hjúkrunar, faglegri þróun og gætir að réttindum og kjörum hjúkrunarfræðinga. Við þurfum öll á hjúkrun að halda.

Við þurfum öll á hjúkrun að halda

Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga stendur fyrir auglýsingaherferðinni „Við þurfum öll á hjúkrun að halda“. Tilgangur auglýsingaherferðarinnar er að sýna fjölbreytt störf hjúkrunarfræðinga og mikilvægi starfa þeirra í samfélaginu. Markmiðið er að efla skilning á mikilvægi og fjölbreytileika starfa hjúkrunarfræðinga og vekja áhuga fjölbreytts hóps á hjúkrunarfræði og hjúkrunarfræðinámi.

Í myndbandinu hér fyrir neðan skyggnumst við inn í raunveruleika hjúkrunarfræðinga á spítölum, heilsugæslu, inni á heimilum fólks, á vinnustöðum og í fjölbreyttum úrræðum um allt land. Þar sem lífið gerist, þar eru þau.

Raddir hjúkrunarfræðinganna sjálfra leiða okkur áfram. Þær segja sögurnar sem sjást ekki alltaf, augnablikin sem skipta mestu máli, nærveruna, fagmennskuna og umhyggjuna sem heldur samfélaginu gangandi.

Með slagorðinu viljum við minna á það sem skiptir máli, hversu ómetanlegt framlag hjúkrunarfræðinga er í dag, á morgun og til framtíðar.

Við þurfum á ykkur að halda. Og við þurfum fleiri.

Hjúkrunarfræðingar starfa á öllum sviðum

Hjúkrunarfræðingur er sá sem hefur starfsleyfi frá Embætti landlæknis byggt á mati á háskólagráðu í hjúkrunarfræði. Hér á landi er hjúkrunarfræði fjögurra ára háskólanám og er kennt við Háskóla Íslands og Háskólanum á Akureyri. Sérfræðingur í hjúkrun er sá sem hefur hlotið starfsleyfi frá Embætti landlæknis og hefur lokið meistaraprófi eða doktorsprófi í hjúkrunarfræði frá viðurkenndum háskóla.

Hjúkrunarfræðingar starfa á öllum sviðum heilbrigðisþjónustu og þróa stefnu heilbrigðiskerfisins með hagsmuni skjólstæðinga að leiðarljósi. Hjúkrunarfræðingar starfa sjálfstætt og í samvinnu við aðra, við að hjúkra einstaklingum á öllum aldri, fjölskyldum, hópum og samfélögum, sjúkum sem heilbrigðum og við allar aðstæður.

Í hjúkrun felst heilsuefling, heilsuvernd og umönnun sjúkra, fatlaðra og dauðvona einstaklinga. Hjúkrunarfræðingar eru málsvarar skjólstæðinga sinna, stuðla að öruggu umhverfi, stunda rannsóknir, taka þátt í stefnumótun heilbrigðisyfirvalda og starfa við stjórnun og kennslu.

Félagið

Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga (Fíh) var stofnað árið 1919 og á sér langa og ríka sögu. Félagið er bæði fag- og stéttarfélag hjúkrunarfræðinga á Íslandi. Hjúkrunarfræðingar eru fjölmennasta heilbrigðisstéttin hér á landi. Félagsfólk er kjarni starfseminnar og eru um 5.300 alls, þar af rúmlega 4.100 starfandi félagar. Af starfandi hjúkrunarfræðingum starfa um 1.200 á landsbyggðinni.

Félagið er samtök hjúkrunarfræðinga þar sem hjúkrunarfræðingar vinna saman að þróun hjúkrunar, heilbrigðisþjónustu og heilsue­flingu þjóðarinnar. Félagsfólk er kjarni starfseminnar og árangur félagsins byggir á virkri þátttöku þeirra. Félagið er hagsmunasamtök hjúkrunarfræðinga og stendur vörð um réttindi, skyldur og kjör hjúkrunarfræðinga.

Stjórn félagsins fer með æðsta vald í málefnum félagsins milli aðalfunda. Formaður ber ábyrgð á daglegri stjórn félagsins í samræmi við stefnu stjórnar. Helga Rósa Másdóttir hefur verið formaður frá árinu 2025.

Innan félagsins eru starfræktar deildir sem vinna að framgangi hjúkrunarfræði á sínu sérsviði eða á sérstöku landsvæði. Félagið er í virku samstarfi við samtök hjúkrunarfræðinga á alþjóðlegum vettvangi. Þar er áhersla á þróun hjúkrunar og frumkvæði haft í málum sem hafa áhrif á hjúkrunarfræðinga um allan heim.

Félagið sinnir hefðbundnu hlutverki stéttarfélags, þar á meðal kjarasamningsgerð. Auk þess að standa vörð um kjör, réttindi, skyldur og starfsumhverfi félagsfólks.

Tímarit hjúkrunarfræðinga hefur verið gefið út í ýmsum myndum frá árinu 1925. Í tímaritinu má nálgast ritrýndar fræðigreinar, fræðslugreinar, viðtöl og áhugavert efni um fagið. Á vefnum hjukrun.is má finna Rapportið, hlaðvarp Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga, þar má hlusta á hjúkrunarfræðinga ræða um sín fjölbreyttu og spennandi störf.

Meira