Fara á efnissvæði
Frétt

Framboð til stjórnar Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga

Kjör stjórnarmanna fer fram á aðalfundi félagsins þriðjudaginn 19. maí. Til að kjósa á aðalfundi þarf að skrá sig, skráning á aðalfund er opin til kl. 12:00 þriðjudaginn 12. maí.

Á aðalfundi verða kjörnir þrír aðalmenn í stjórn Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga.

Fjórir hjúkrunarfræðingar eru í framboði til aðalmanns. Hér má lesa um frambjóðendurna.

Ásthildur Lísa B. Guðmundsdóttir

Bryndís Rut Logadóttir

María Kristjánsdóttir

Sólveig Tryggvadóttir

Á aðalfundi verður kjörinn einn varamaður í stjórn. Einn hjúkrunarfræðingur er í framboði.

Ásdís M. Finnbogadóttir

Kjör stjórnarmanna fer fram á aðalfundi félagsins þriðjudaginn 19. maí. Nauðsynlegt er að skrá sig til að taka þátt í atkvæðagreiðslu.

Aðalfundur er æðsta vald Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga, hjúkrunarfræðingar með fulla aðild og eru skráðir hafa þar atkvæðisrétt.

Skráning á aðalfund er opin til kl. 12:00 þriðjudaginn 12. maí.